Járnhandrið
Sjöundi og síðasti staðsetning Palermo spíralsins er í miðjunni, í Via Bara, rétt norðan við Teatro Massimo tónleikahúsð, á svæði iðandi af staðbundnum veitingastöðum. Hér er litið til baka, yfir forn húsin þar sem marmarasvalir og járnhandrið eru meginatriði.
Tækniatriði: Zenza Bronica EC TL með Zenza Bronica Zenzanon 100mm F2.8 linsu, Ilford HP5+ @400, 1/30, f/5,6 Ilford Ilfotec DD-X (1+9) 15:45 min at 20°C.
Kýanótýpa, tannínsýrutónuð, á Arches Natural White Watercolor Paper, Hot Press, 300gsm, 20 x 20 cm á 31 x 31 cm örk.
Kýanótýpur byggja á ljósmyndaaðferð sem rekja má til ársins 1842.
(1) Myndirnar eru ýmist teknar á filmu eða stafræna myndavél.
(2) Þær eru síðan unnar í tölvu til að stjórna blæbrigðum.
(3) Eftir það er prentuð negatív mynd eftir þeim á glæru, í þeirri stærð sem þær eiga að vera í lokin.
(4) Vatnsllitapappír er undirbúinn með því að maska myndflötinn og bera á hann sérstakan ljósnæman vökva.
(5) Þegar pappírinn er þurr er glæran lögð yfir hann, glerplata sett yfir þannig að glæran liggi þétt að pappírnum.
(6) Ljósakassi með útfjólubláu ljósi er síðan lagður yfir glerið og lýsing framkvæmd eins og þarf.
(7) Þegar búið er að lýsa myndina á pappírinn er hann þviginn upp úr edikvatni og skolaður. Niðurstaðan er skærblá mynd, bláprent.
(8) Næst er myndin bleikt lítillega í þvottasóda. Bleikingin lýsir ljósustu fletina.
(9) Að lokum er myndin tónuð í tannínríkri lausn, sem gerir dökku fletina svargráa og tónar ljósu fletina í einkennandi blæ. Mismunandi jurtir gefa myndunum ólíkan blæ. Eikarepli gera grátónana rauðbleika. Súmaklauf gefa þeim gulbrúnan blæ. Rauðfurubörkur gerir grátóna ryðbrúna og litar einnig ljósu litina brúnbleika.
- Subject Matter: Landscape, Urban, Architecture, Street photography
- Created: May 2022
- Collections: Palermo spirale